Vísitala launa 2012


  • Hagtíðindi
  • 15. mars 2013
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Laun á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 7,4% milli áranna 2011 og 2012 samkvæmt ársmeðaltali vísitölu launa. Þá hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 7,8% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna um 6,6%. Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun skrifstofufólks mest á milli ára eða um 9,2% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst eða um 6,7%. Á sama tímabili var hækkun launa eftir atvinnugreinum á bilinu 6,0% til 11,2%.

Til baka