- Hagtíðindi
- 30. júní 2014
- ISSN: 1670-4509
              
	      
              - 
		Skoða PDF
              
 
          
          Árið 2013 bjuggu 6,7% Íslendinga við skort á efnislegum lífsgæðum. Hlutfallið lækkaði umtalsvert í aðdraganda hrunsins, fór úr 7,4% árið 2007 í 2,5% árið 2008, en jókst eftir það. Hlutfallið var þó ekki hærra á árunum 2010-2013 en það hafði verið árin 2004-2007. Í samanburði við önnur lönd á Evrópska efnahagssvæðinu var hlutfall íbúa sem býr við skort á efnislegum lífsgæðum á Íslandi það sjötta lægsta  árið 2012.