Manntalið 2011: Stofnanaheimili og heimilislausir


  • Hagtíðindi
  • 24. ágúst 2015
  • ISSN: 1670-4487

  • Skoða PDF
Alls var 7.471 íbúi búsettur á stofnanaheimili hinn 31. desember 2011 samkvæmt manntalinu sem Hagstofa Íslands tók þann dag. Flestir bjuggu á heimilum fyrir aldraða, eða 3.853, en 2.545 voru búsettir í námsmannaíbúðum. Alls voru 812 búsettir á heimilum fyrir fatlað fólk, en 261 með búsetu í öðrum tegundum stofnana. Þá var 761 íbúi án heimilis, þar af 111 á útigangi og 650 í húsnæðishraki.

Til baka