- Hagtíðindi
- 30. ágúst 2012
- ISSN: 1670-4541
-
Skoða PDF
Árið 2011 var afli íslenskra skipa tæp 1.149 þúsund tonn, 85 þúsund tonnum meiri en árið 2010. Aflaverðmæti nam tæpum 154 milljörðum króna og jókst um 15,7% frá fyrra ári, eða um 3,2% ef mælt er á föstu verði. Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, mest uppsjávarafli sem landað var þar. Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum eða 46%. Af þorskaflanum fór mest í landfrystingu og makrílaflinn fór að lang stærstum hluta annað hvort í landfrystingu eða var sjófrystur.