Fiskiskipastóllinn í árslok 2003


  • Hagtíðindi
  • 26. mars 2004
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Í árslok 2003 voru alls 1.872 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun og hafði þeim fækkað um 63 frá árinu 2002. Vélskip voru 869 talsins og var samanlögð stærð þeirra alls 102.330 brúttótonn. Vélskipum fækkaði um 2 frá árinu 2002 og dróst vélskipaflotinn saman um 3.970 brúttótonn. Togarar voru 71 og var samanlögð stærð þeirra 77.064 brúttótonn, þeim fækkaði alls um 5 frá árinu 2002 og dróst stærð togaraflotans saman um 3.654 brúttótonn. Opnir fiskibátar voru 932 og alls vógu þeir 4.331 brúttótonn. Opnum fiskibátum fækkaði um 56 talsins frá árinu 2002 og dróst heildarstærð þeirra saman um 239 brúttótonn.

Til baka