Fiskiskipastóllinn í árslok 2007


  • Hagtíðindi
  • 27. febrúar 2008
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Í lok árs 2007 voru 1.642 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun og hafði þeim fækkað um 50 frá árinu áður. Fjöldi vélskipa var alls 834 og samanlögð stærð þeirra 91.656 brúttótonn. Vélskipum fækkaði um 18 á milli ára og dróst flotinn saman um 5.210 brúttótonn. Togarar voru alls 64 og fjölgaði um einn frá árinu á undan. Heildarstærð togaraflotans var 74.067 brúttótonn og hafði minnkað um 4.181 brúttótonn frá árinu 2006. Opnir fiskibátar voru 744 og 3.556 brúttótonn að stærð. Opnum fiskibátum fækkaði um 33 milli ára og heildarstærð þeirra dróst saman um 165 brúttótonn.

Til baka