Hagur fiskveiða og fiskvinnslu 2003


  • Hagtíðindi
  • 19. janúar 2005
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Hagstofa Íslands hefur nú lokið gerð yfirlits yfir rekstur helstu greina sjávarútvegs á árinu 2003. Við gerð þess er mest byggt á reikningum, sem 126 fyrirtæki í sjávarútvegi hafa sent Hagstofunni, og kann hún þeim bestu þakkir fyrir. Yfirlitin sýna afkomu helstu greina veiða og vinnslu sjávarafurða, þ.e. báta í nokkrum stærðarflokkum, loðnuskipa, ísfisktogara, frystitogara, botnfiskfrystingar, botnfisksöltunar, mjölvinnslu, síldarsöltunar, rækjuvinnslu, hörpudiskvinnslu og ísfiskvinnslu. Yfirlit þessi eru færð upp til heildar. Einnig er sýnt yfirlit yfir efnahag sjávarútvegsins í heild árin 1997?2003 og dreifing vergrar hlutdeildar í frystingu og söltun og dreifing afkomu 126 fyrirtækja í úrtaki Hagstofunnar árið 2003.

Til baka