Hagur fiskveiða og fiskvinnslu 2008


  • Hagtíðindi
  • 22. mars 2010
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns eða EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegsins jókst milli áranna 2007 og 2008. Í fiskveiðum og -vinnslu hækkaði þetta hlutfall (án milliviðskipta) úr 19½% í 27½%, í fiskveiðum úr 21½% árið 2007 í 25% af tekjum árið 2008 og í fiskvinnslu úr 7% í 17%.

Til baka