- Hagtíðindi
- 25. janúar 2012
- ISSN: 1670-4541
-
Skoða PDF
Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegsins dróst lítillega saman milli áranna 2009 og 2010. Í fiskveiðum og -vinnslu lækkaði þetta hlutfall (án milliviðskipta) úr 31% í 28,9%, hækkaði í fiskveiðum úr 26,3% árið 2009 í 26,6% af tekjum árið 2010 og lækkaði í fiskvinnslu úr 20,8% í 16,1%.