- Hagtíðindi
- 14. maí 2007
- ISSN: 1670-4541
-
Skoða PDF
Á árinu 2006 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða 123,6 milljörðum króna og jókst um 10,1% frá fyrra ári. Framleiðslan mæld á föstu verði dróst hins vegar saman um 6,9%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 124,4 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 12,9% en dróst saman í tonnum um 12,4%. Útflutt afurðaverðmæti allra aflategunda nema skel- og krabbadýra og annarra sjávarafurða jókst frá fyrra ári.