Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2011


  • Hagtíðindi
  • 18. maí 2012
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Árið 2011 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða rúmum 256 milljörðum króna og jókst um 7,8% frá fyrra ári. Er þar um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða. Framleiðslan mæld á föstu verði jókst um 10,3%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 252 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 14,1% og í magni um 6,4%. Árið 2011 voru flutt út 672 þúsund tonn samanborið við 632 þúsund tonn árið áður. Frystar afurðir skiluðu 57% af heildarútflutningsverðmæti.

Til baka