Heildarendurskoðun á tímaröðum þjóðhagsreikninga


  • Hagtíðindi
  • 30. nóvember 2020
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Samhliða birtingu talnaefnis fyrir þriðja ársfjórðung 2020 birtir Hagstofa Íslands niðurstöður heildarendurskoðunar tímaraða þjóðhagsreikninga. Endurskoðunin er í samræmi við samþykkta stefnu og leiðbeiningar Hagstofu Evrópusambandsins (Eurostat) um reglulegar heildarendurskoðanir þjóðhagsreikninga og samræmda tímasetningu þeirra. Slíkar endurskoðanir gera Hagstofu Íslands kleift að taka inn nýjar gagnaheimildir og breyttar aðferðir við gerð þjóðhagsreikninga með það að markmiði að viðhalda og styrkja gæði niðurstaðna. Í tengslum við slíkar endurskoðanir gefst einnig tækifæri til að aðlaga gagnaöflun og úrvinnslu að breytingum sem eiga sér stað í samfélaginu yfir tíma, t.d. breytingar í framleiðslu- og neysluháttum. Endurskoðunin nær frá og með árinu 1995 til ársins 2019.

Til baka