- Hagtíðindi
- 16. júní 2022
- ISSN: 1670-4770
-
Skoða PDF
Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu nam 4,2% árið 2021 samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum
ferðaþjónustureikninga, samanborið við 3,6% árið 2020. Á tímabilinu 2016 til 2019, fyrir
kórónuveirufaraldurinn, nam hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu að jafnaði 8,1%.
Erlendum komufarþegum til landsins fjölgaði ár frá ári á tímabilinu 2009 til 2018 og voru 2,8 milljón
árið 2018 en fækkaði í kjölfar kórónuveirufaraldursins sem hófst árið 2020. Tæplega hálf milljón
erlendra farþega kom til landsins árið 2020 og rúmlega 800 þúsund árið 2021.