Fjármálareikningar 2005–2015


  • Hagtíðindi
  • 18. október 2016
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Niðurstöður fjármálareikninga sýna að heildarfjáreignir innlendra efnahagsgeira íslenska hagkerfisins námu 1.109% af VLF í árslok 2015 samanborið við fjárskuldbindingar sem námu 1.167% af VLF. Í fjármálareikningum er sérstök áhersla á fjármálafyrirtæki og undirgeira þeirra. Heildarfjáreignir fjármálafyrirtækja námu tæplega sexfaldri landsframleiðslu í árslok 2015. Fjármálafyrirtæki í slitameðferð eru birt sérstaklega sem undirgeiri, en umfang þeirra í íslenska fjármálakerfinu hefur verið umtalsvert eftir hrun fjármálakerfisins en hefur minnkað umtalsvert í tengslum við uppgjör á þrotabúum föllnu bankanna. Einnig eru bundnar fjármálastofnanir birtar sem sérstakur undirgeiri. Heildarfjáreignir þeirra námu um 82% af landsframleiðslu í árslok 2015.

Til baka