- Hagtíðindi
- 03. apríl 2009
- ISSN: 1670-4762
-
Skoða PDF
Áætlanir Hagstofunnar sýna að landsframleiðsla á árinu 2008 varð 1.465 milljarðar króna og jókst að raungildi um 0,3% frá fyrra ári. Vöxtur landsframleiðslunnar á liðnu ári er einkum drifinn af útflutningi sem jókst um 7%. Á sama tíma dróst innflutningur saman um 18%. Þessi þróun veldur því að verulega dró úr halla á vöru og þjónustuviðskiptum við útlönd á árinu.