Hagvísar í febrúar 2009


  • Hagtíðindi
  • 04. febrúar 2009
  • ISSN: 1670-4762

  • Skoða PDF
Vísitala neysluverðs í janúar 2009 hækkaði um 0,57% frá fyrra mánuði (0,43% án húsnæðis). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 18,6% (21,4% án húsnæðis) en breytingin undanfarna þrjá mánuði samsvarar 16,4% ársverðbólgu (17,1% verðbólgu án húsnæðis). Meðalvísitala neysluverðs árið 2008 var 12,4% hærri en meðalvísitalan 2007. Samsvarandi breyting var 5,0% árið 2007. Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis árið 2008 var 12,2% hærri en meðalvísitalan 2007. Samsvarandi breyting var 2,5% árið 2007.

Til baka