Hagvísar í maí 2008


  • Hagtíðindi
  • 06. maí 2008
  • ISSN: 1670-4762

  • Skoða PDF
Vísitala neysluverðs í apríl 2008 hækkaði um 3,41% frá fyrra mánuði (4,21% án húsnæðis). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 11,8% (10,6% án húsnæðis) en breytingin undanfarna þrjá mánuði samsvarar 28,0% ársverðbólgu (33,1% verðbólgu án húsnæðis). Samræmd neysluverðsvísitala EES á Íslandi í mars hækkaði um 1,6% frá fyrra mánuði en um 0,94% frá fyrra mánuði í EES-ríkjunum. Síðastliðna tólf mánuði hækkaði vísitalan um 6,8% á Íslandi og um 3,8% að meðaltali í EES-ríkjunum. Vísitala byggingarkostnaðar í apríl hækkaði um 3,3% frá fyrra mánuði; 12,5% hærri en í apríl 2007.

Til baka