- Hagtíðindi
- 04. mars 2009
- ISSN: 1670-4762
-
Skoða PDF
Vísitala neysluverðs í febrúar 2009 hækkaði um 0,51% frá fyrra mánuði (1,25% án húsnæðis). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 17,6% (21,0% án húsnæðis) en breytingin undanfarna þrjá mánuði samsvarar 10,9% ársverðbólgu (14,4% verðbólgu án húsnæðis). Samræmd neysluverðsvísitala EES á Íslandi í janúar hækkaði um 0,6% frá fyrra mánuði en lækkaði um 0,6% frá fyrra mánuði í EES-ríkjunum.