Hagvísar í mars 2010


  • Hagtíðindi
  • 09. mars 2010
  • ISSN: 1670-4762

  • Skoða PDF
Áætlanir Hagstofunnar sýna að landsframleiðsla á árinu 2009 varð 1.500 milljarðar króna og dróst saman að raungildi um 6,5% frá fyrra ári. Samdráttur landsframleiðslunnar á liðnu ári kemur fram í miklum samdrætti þjóðarútgjalda, 20,1%. Samdráttur varð í öllum þáttum þjóðarútgjalda, einkaneysla dróst saman um 14,6%, samneysla um 3% og fjárfesting um 49,9%. Aftur á móti jókst útflutningur um 6,2% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 24%.

Til baka