Hagvísar í mars 2011


  • Hagtíðindi
  • 04. mars 2011
  • ISSN: 1670-4762

  • Skoða PDF
Vísitala neysluverðs í febrúar 2011 hækkaði um 1,2% frá fyrra mánuði (hækkaði einnig um 1,2% án húsnæðis). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,9% (2,2% án húsnæðis) en breytingin undanfarna þrjá mánuði jafngildir 2,4% ársverðbólgu (2,4% verðbólgu án húsnæðis). Samræmd neysluverðsvísitala EES á Íslandi í janúar lækkaði um 1,17% frá fyrra mánuði en lækkaði um 0,26% frá fyrra mánuði í EES-ríkjunum. Síðastliðna tólf mánuði hækkaði samræmda vísitalan um 2,2% á Íslandi og um 2,7% að meðaltali í EES-ríkjunum.

Til baka