- Hagtíðindi
- 04. nóvember 2009
- ISSN: 1670-4762
-
Skoða PDF
Vísitala neysluverðs í október 2009 hækkaði um 1,14% frá fyrra mánuði (1,09% hækkun án húsnæðis). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 9,7% (13,5% án húsnæðis) en breytingin undanfarna þrjá mánuði samsvarar 10,2% ársverðbólgu (11,1% verðbólgu án húsnæðis).