Hagvísar í október 2010


  • Hagtíðindi
  • 07. október 2010
  • ISSN: 1670-4762

  • Skoða PDF
Vísitala neysluverðs í september 2010 var óbreytt frá fyrra mánuði (einnig óbreytt án húsnæðis). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 3,7% (4,9% án húsnæðis) en breytingin undanfarna þrjá mánuði jafngildir 1,6% ársverðhjöðnun (1,6% verðhjöðnun án húsnæðis). Samræmd neysluverðsvísitala EES á Íslandi í ágúst hækkaði um 0,39% frá fyrra mánuði og um 0,18% frá fyrra mánuði í EES-ríkjunum. Síðastliðna tólf mánuði hækkaði samræmda vísitalan um 5,9% á Íslandi og um 2,0% að meðaltali í EES-ríkjunum.

Til baka