- Hagtíðindi
- 13. desember 2007
- ISSN: 1670-4665
-
Skoða PDF
Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 4,3% að raungildi á 3. fjórðungi ársins 2007 frá sama fjórðungi árið áður. Á sama tíma jókst einkaneysla um 7,5% og samneysla um rúmlega 3% en fjárfesting dróst saman um tæplega 5% og þjóðarútgjöld jukust um rúmlega 2%. Á tímabilinu jókst útflutningur um rúmlega 7% og innflutningur um 2%.