Landsframleiðslan 2014


  • Hagtíðindi
  • 10. mars 2015
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla jókst að raungildi um 1,9% á árinu 2014 og hefur ekki verið hærri að raungildi frá árinu 2008. Neysla og fjárfesting dró hagvöxtinn áfram en þjóðarútgjöld jukust um 5,3%. Einkaneysla jókst um 3,7%, samneysla um 1,8% og fjárfesting jókst um 13,7%. Útflutningur jókst um 3,1% á sama tíma og innflutningur jókst um 9,9% þannig að þótt verulegur afgangur yrði af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári, eða 128 milljarðar króna, dró utanríkisverslun úr hagvexti.

Til baka