- Hagtíðindi
- 12. júní 2008
- ISSN: 1670-4665
-
Skoða PDF
Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 1,1% að raungildi á 1. fjórðungi ársins 2008 frá sama fjórðungi árið áður. Á sama tíma jókst einkaneysla um 5,2% og samneysla um 3,3% en fjárfesting dróst saman um 5,3%. Þjóðarútgjöldin, sem eru samtala þessara liða, jukust um 1,2%. Útflutningur jókst um 0,2% og innflutningur um 0,4%. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla sýnir 3,7% samdrátt frá 4. ársfjórðungi 2007 til 1. ársfjórðungs 2008. Þar af dróst einkaneysla saman um 1,0% og þjóðarútgjöld um 2,7%.