Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2010


  • Hagtíðindi
  • 08. júní 2010
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla er talin hafa aukist um 0,6% að raungildi frá 4. ársfjórðungi 2009 til 1. ársfjórðungs 2010. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 1,3%. Einkaneysla dróst saman um 0,6%, samneysla um 0,5% og fjárfesting dróst saman um 15,6% en sá samdráttur skýrist að mestu leyti af kaupum á skipum og flugvélum á 4. ársfjórðungi. Á sama tímabili dróst bæði út- og innflutningur saman, útflutningur um 3,6% og innflutningur um 3,3%. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxtinn milli ársfjórðunga, ekki ára.

Til baka