Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2015


  • Hagtíðindi
  • 09. júní 2015
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðslan á fyrsta ársfjórðungi 2015 jókst um 2,9% borið saman við 1. ársfjórðung 2014. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 9,9%. Einkaneysla jókst um 3,9%, samneysla um 1,5% og fjárfesting um 23,5%. Útflutningur jókst um 2,7% en innflutningur töluvert meira, eða um 17,4%.

Til baka