Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2011


  • Hagtíðindi
  • 08. september 2011
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla fyrstu sex mánuði ársins 2011 jókst um 2,5% að raungildi samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2010. Landsframleiðsla dróst saman um 2,8% að raungildi milli 1. ársfjórðungs 2011 og 2. ársfjórðungs 2011. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 3,9%. Einkaneysla jókst um 1,8%, samneysla um 0,4% og fjárfesting um 7,7%. Útflutningur jókst um 1,4% en innflutningur var óbreyttur.

Til baka