Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2012


  • Hagtíðindi
  • 07. september 2012
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla á fyrstu sex mánuðum ársins 2012 jókst um 2,4% að raungildi samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2011. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 4,2%. Einkaneysla jókst um 4% og fjárfesting um 19,3%. Samneysla dróst hins vegar saman um 0,7%. Útflutningur jókst um 4,9% og innflutningur nokkuð meira, eða um 8,8%. Landsframleiðsla á 2. ársfjórðungi 2012, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 0,5% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 6,5% frá 1. ársfjórðungi 2012.

Til baka