Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2008


  • Hagtíðindi
  • 12. desember 2008
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 0,8% að raungildi á 3. fjórðungi ársins 2008 frá sama fjórðungi árið áður. Á sama tíma má ætla að þjóðarútgjöld hafi dregist saman um tæplega 10% þar sem einkaneysla dróst saman um tæplega 7% og fjárfesting um tæplega 28%. Samneysla óx hins vegar um 3%. Þá er talið að útflutningur hafi vaxið um tæplega 18% en innflutningur hafi dregist saman um tæplega 10%. Þessi þróun veldur því að verulega dró úr halla á vöru- og þjónustuviðskiptum samanborið við 3. ársfjórðung 2007 og því dregst landsframleiðsla mun minna saman en sem nemur samdrætti þjóðarútgjalda.

Til baka