Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2013


  • Hagtíðindi
  • 06. desember 2013
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla á fyrstu níu mánuðum ársins 2013 jókst um 3,1% að raungildi miðað við fyrstu níu mánuði ársins 2012. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, saman um 0,5%. Einkaneysla jókst um 1,3% og samneysla um 1,4%. Fjárfesting dróst hins vegar saman um 7,1%. Útflutningur jókst um 4,2% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 1,9%. Hagvöxtur fyrstu níu mánuði ársins er því drifinn áfram af breytingum í utanríkisverslun.

Til baka