- Hagtíðindi
- 06. mars 2009
- ISSN: 1670-4665
-
Skoða PDF
Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 0,9% að raungildi frá 3. ársfjórðungi 2008 til 4. ársfjórðungs 2008. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 14% þar sem einkaneysla dróst saman um 15% og fjárfesting um tæplega 14%. Samneysla óx hins vegar um 2,4% frá 3. ársfjórðungi 2008 til 4. ársfjórðungs. Þá er talið að útflutningur hafi vaxið um 1,5% en innflutningur hafi dregist saman um tæplega 33%. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxtinn milli ársfjórðunga, ekki ára.