Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2011


  • Hagtíðindi
  • 08. mars 2012
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla jókst um 1,9% að raungildi milli 3. og 4. ársfjórðungs 2011. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 4,5%. Einkaneysla jókst um 1,6% og fjárfesting um 27,5%. Samneysla dróst hins vegar saman um 0,1%. Þá jókst útflutningur um 0,7% og innflutningur um 5,4% á sama tímabili. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára. Landsframleiðsla á 4. ársfjórðungi 2011, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 2,7% frá sama ársfjórðungi fyrra árs.

Til baka