Þjóðhagsspá á vetri 2016


  • Hagtíðindi
  • 04. nóvember 2016
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Gert er ráð fyrir að hagvöxtur árið 2016 nemi 4,8%, einkaneysla aukist um 7,1%, fjárfesting um 21,7% og samneysla um 1,8%. Spáð er að hagvöxtur verði 4,4% árið 2017 en að þá aukist einkaneysla um 5,7%, fjárfesting um 7,4% og samneysla um 0,9%. Neysla og fjárfesting standa að baki hagvexti áranna 2016 og 2017 og hafa verið í örum vexti frá 2014. Árið 2018 er reiknað með að hagvöxtur verði 3%, einkaneysla aukist um 3,7%, fjárfesting um 1,4% og samneysla um 1,5%. Árin 2019–2022 er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði á bilinu 2,6–2,9%, einkaneysla aukist um 2,5–2,9%, fjárfesting um 2,9–4,2% og aukning samneyslu verði í kringum 1,5% árlega.

Til baka