Þjóðhagsspá


  • Hagtíðindi
  • 26. júní 2020
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Útlit er fyrir að verg landsframleiðsla dragist saman um 8,4% í ár og er það mesti samdráttur á lýðveldistímanum. Slæmar horfur í ár má rekja til kórónaveirufaraldursins (Covid-19) sem hefur m.a. lamað samgöngur á milli landa og þar af leiðandi haft mikil áhrif á ferðaþjónustu á Íslandi. Reiknað er með snörpum viðsnúningi á næsta ári og að vöxtur landsframleiðslunnar verði 4,9%. Næstu ár gera ráð fyrir hagvexti á bilinu 2,5%-2,9%. Horfur eru á að þjóðarútgjöld dragist saman um 4,4% í ár en að þau aukist um 4,3% árið 2021.

Til baka