Utanríkisverslun með vörur 2009


  • Hagtíðindi
  • 31. mars 2010
  • ISSN: 1670-4649

  • Skoða PDF
Árið 2009 voru fluttar út vörur fyrir 500,9 milljarða króna fob en inn fyrir 410,6 milljarða króna fob, 446,1 milljarð króna cif. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd í fyrsta skipti síðan 2002, reiknað á fob verðmæti, sem nam 90,3 milljörðum króna fob en 6,7 milljarða króna halli var árið 2008. Verðmæti útflutnings jókst um 7,3% frá fyrra ári á verðlagi hvors árs en innflutningur dróst saman um 13,3%. Sjávarafurðir voru 41,7% alls útflutnings, í annað sinn í röð með minni hlutdeild en iðnaðarvörur.

Til baka