Vöruviðskipti við útlönd 2010


  • Hagtíðindi
  • 15. apríl 2011
  • ISSN: 1670-4649

  • Skoða PDF
Árið 2010 voru fluttar út vörur fyrir 561,0 milljarða króna fob en inn fyrir 440,8 milljarða króna fob, 477,2 milljarða króna cif. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 120,2 milljörðum króna fob en 90,3 milljarða króna afgangur var árið 2009. Verðmæti vöruútflutnings jókst um 12,0% frá fyrra ári á gengi hvors árs og vöruinnflutningur jókst um 7,0%. Sjávarafurðir voru 39,3% alls vöruútflutnings, í þriðja árið í röð með minni hlutdeild en iðnaðarvörur.

Til baka