Áfengisneysla 2006


  • Hagtíðindi
  • 08. mars 2007
  • ISSN: 1670-5718

  • Skoða PDF
Áfengissala hér á landi var um 1.722 þúsund alkóhóllítrar árið 2006 á móti 1.625 þúsundum alkóhóllítra árið 2005. Aukningin er um 6% milli áranna. Salan samsvarar 7,20 alkóhóllítrum á hvern íbúa 15 ára og eldri, en var 7,05 alkóhóllítrar á árinu 2005. Sú aukning er ríflega 2% milli ára. Í lítrum talið var aukningin um 6,1% milli ára, úr 21,8 milljónum lítra árið 2005 í 23,2 milljónir lítra árið 2006.

Til baka