Vinnumarkaður á 1. ársfjórðungi 2011


  • Hagtíðindi
  • 20. apríl 2011
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á fyrsta ársfjórðungi 2011 voru 176.000 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 162.300 starfandi en 13.700 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 79,2% en atvinnuleysi var 7,8%. Atvinnulausum fjölgaði um 200 frá fyrsta ársfjórðungi 2010 og starfandi fækkaði um 1.500. Atvinnuleysi var 8,5% á höfuðborgarsvæðinu en 6,5% utan þess.

Til baka