Vinnumarkaður á 1. ársfjórðungi 2013


  • Hagtíðindi
  • 30. apríl 2013
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á fyrsta ársfjórðungi 2013 voru 178.300 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 167.900 starfandi og 10.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 78,9%, hlutfall starfandi 74,3% og atvinnuleysi 5,8%. Starfandi fjölgaði um 4.100 og atvinnulausum fækkaði um 2.400 frá fyrsta ársfjórðungi 2012. Atvinnulausir karlar voru 5.700 (6,1%) og konur 4.600 (5,4%). Atvinnuleysi var 6,4% á höfuðborgarsvæðinu en 4,7% utan þess.

Til baka