Vinnumarkaður á 1. ársfjórðungi 2015


  • Hagtíðindi
  • 29. apríl 2015
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á fyrsta ársfjórðungi 2015 voru 187.300 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 179.200 starfandi og 8.000 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81%, hlutfall starfandi mældist 77,5% og atvinnuleysi var 4,3%. Frá fyrsta ársfjórðungi 2014 fjölgaði starfandi fólki um 7.800 og hlutfallið jókst um 2,7 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 2.500 manns og hlutfallið sömuleiðis um 1,5 prósentustig.

Til baka