Vinnumarkaður á 2. ársfjórðungi 2014


  • Hagtíðindi
  • 13. ágúst 2014
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á öðrum ársfjórðungi 2014 voru 189.900 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 178.700 starfandi og 11.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 83,1%, hlutfall starfandi mældist 78,2% og atvinnuleysi var 5,9%. Starfandi fjölgaði um 3.200 og fjöldi atvinnulausra minnkaði um 1.600 frá öðrum ársfjórðungi 2013. Atvinnulausar konur voru 5.400 eða 6% og atvinnulausir karlar voru 5.900 eða 5,9%. Atvinnuleysi var 6,4% á höfuðborgarsvæðinu en 5,1% utan þess.

Til baka