Vinnumarkaður á 2. ársfjórðungi 2018


  • Hagtíðindi
  • 09. ágúst 2018
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Á öðrum ársfjórðungi 2018 voru að jafnaði 205.400 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 198.100 starfandi og 7.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka var 83,0%, hlutfall starfandi 80,0% en atvinnuleysi 3,6%. Samanborið við annan ársfjórðung 2017 fjölgaði starfandi fólki um 2.900 en hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði hins vegar um 1,5 prósentustig.

Til baka