- Hagtíðindi
- 14. október 2009
- ISSN: 1670-4509
-
Skoða PDF
Á þriðja ársfjórðungi 2009 voru 182.500 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 171.500 starfandi en 10.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 82,1% en atvinnuleysi var 6%. Atvinnulausum fjölgaði um 6.100 frá þriðja ársfjórðungi 2008 og starfandi fækkaði um 12.300. Atvinnuleysi var 7,1% á höfuðborgarsvæðinu en 4% utan þess.