Vinnumarkaður á 3. ársfjórðungi 2012


  • Hagtíðindi
  • 30. október 2012
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á þriðja ársfjórðungi 2012 voru að jafnaði 181.900 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 172.700 starfandi og 9.200 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81,2%. Hlutfall starfandi mældist 77,1% og atvinnuleysi var 5%. Starfandi fjölgaði um 900 og atvinnulausum fækkaði um 1.500 frá þriðja ársfjórðungi 2011. Á sama tíma fækkaði fjölda fólks utan vinnumarkaðar um 700 manns. Atvinnuleysi var 5,5% á höfuðborgarsvæðinu en 4,1% utan þess. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur fjölgaði lítillega eða um 200 manns.

Til baka