Vinnumarkaður á 3. ársfjórðungi 2018


  • Hagtíðindi
  • 01. nóvember 2018
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Á þriðja ársfjórðungi 2018 voru að jafnaði 206.700 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 202.200 starfandi og 4.500 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka var 82,4%, hlutfall starfandi 80,6% en atvinnuleysi 2,2%. Atvinnulausar konur voru 2.200 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,3%. Atvinnulausir karlar voru 2.300 eða 2,0%.

Til baka