Vinnumarkaður á 4. ársfjórðungi 2010


  • Hagtíðindi
  • 19. janúar 2011
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á fjórða ársfjórðungi 2010 voru 178.800 manns á vinnumarkaði, en það jafngildir 79,9% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 165.600 starfandi og 13.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi mældist 74,0% og atvinnuleysi var 7,4%. Atvinnulausum fjölgaði um 1.200 frá fjórða ársfjórðungi 2009 og starfandi fækkaði um 900. Atvinnuleysi var 8,2% á höfuðborgarsvæðinu og 5,9% utan þess. Meðalfjöldi vinnustunda var 38,3 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni.

Til baka