Vinnumarkaður á 4. ársfjórðungi 2014


  • Hagtíðindi
  • 29. janúar 2015
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Á fjórða ársfjórðungi 2014 voru 185.700 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 178.800 starfandi og 7.700 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 80,9%, hlutfall starfandi mældist 77,5% og atvinnuleysi var 4,1%. Frá fjórða ársfjórðungi 2013 fjölgaði starfandi fólki um 1.800 og hlutfallið jókst um 0,5 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 700 manns og hlutfallið sömuleiðis um 0,4 prósentustig.

Til baka