- Hagtíðindi
- 25. apríl 2016
- ISSN: 1670-4770
-
Skoða PDF
Yfir árin 2012–2014 voru 50% fyrirtækja á Íslandi með nýsköpun vöru, þjónustu,
eða verkferla. 36% fyrirtækja settu nýja eða verulega endurbætta vöru á markað
eða buðu upp á nýja eða verulega endurbætta þjónustu. Nýsköpunin gat verið
nýjung á markaði fyrirtækis, eða bara fyrir fyrirtækið sjálft, en 73% fyrirtækja
sem voru með nýsköpun vöru, þjónustu, eða ferla voru með nýsköpun sem var
nýjung fyrir Ísland.