Tæknibúnaður, netnotkun og rafræn viðskipti fyrirtækja 2008


  • Hagtíðindi
  • 14. nóvember 2008
  • ISSN: 1670-4606

  • Skoða PDF
Af fyrirtækjum með 10 starfsmenn eða fleiri eru 80% með staðarnet, 56% þráðlaust staðarnet og 18% nota opinn hugbúnað. Vefsíða er aðgengileg hjá 77% íslenskra fyrirtækja og hjá helmingi íslenskra fyrirtækja eru upplýsingar um vörur og þjónustu aðgengilegar á vefsíðu. Nærri 30% íslenskra fyrirtæja nota sjálfvirk gagnaskipti um netkerfi og þá helst í samskiptum við opinbera aðila. Tæplega 40% fyrirtækja pöntuðu vörur eða þjónustu um netkerfi á síðasta ári og tæplega fjórðungur fyrirtækja seldi vörur eða þjónustu um netkerfi.

Til baka